Stjörnumerkin og samkenndin – Vogin

Samkennd er þýðing á enska orðinu „compassion”. „Self-compassion” er svo þýtt sem samkennd í eigin garð – samkennd sem þú beinir að sjálfri eða sjálfum þér. Við eigum nefnilega oft auðveldara með að sýna öðrum samkennd en okkur sjálfum.

Hvernig tjá stjörnumerkin samkennd? Hvaða stjörnumerki er með mestu samkenndina? Hér má sjá hvernig stjörnurnar sýna öðrum samkennd:

Vogin
23. september — 22. október

Vogin finnur fyrir tilfinningum annarra eins og þær séu hennar eigin. Hún hatar ósætti og vill jafnvægi, þannig að samkennd hennar birtist í því að skapa frið og fegurð í kringum þig. Hún gerir allt til að þér finnist þú elskuð/aður og séð/ur.