Samkennd er þýðing á enska orðinu „compassion”. „Self-compassion” er svo þýtt sem samkennd í eigin garð – samkennd sem þú beinir að sjálfri eða sjálfum þér. Við eigum nefnilega oft auðveldara með að sýna öðrum samkennd en okkur sjálfum.
Hvernig tjá stjörnumerkin samkennd? Hvaða stjörnumerki er með mestu samkenndina? Hér má sjá hvernig stjörnurnar sýna öðrum samkennd:
Vatnsberinn
20. janúar — 18. febrúar
Samkennd Vatnsberans er hugmyndafræðileg. Hann finnur til með mannkyninu í heild, baráttunni fyrir réttlæti og jafnræði. Hann sýnir samkennd með því að gera heiminn betri stað, ekki bara með tárum – heldur hugmyndum.


