Samkennd er þýðing á enska orðinu „compassion”. „Self-compassion” er svo þýtt sem samkennd í eigin garð – samkennd sem þú beinir að sjálfri eða sjálfum þér. Við eigum nefnilega oft auðveldara með að sýna öðrum samkennd en okkur sjálfum.
Hvernig tjá stjörnumerkin samkennd? Hvaða stjörnumerki er með mestu samkenndina? Hér má sjá hvernig stjörnurnar sýna öðrum samkennd:
Bogmaðurinn
22. nóvember — 21. desember
Bogmaðurinn sýnir samkennd með von og húmor. Hann trúir að það sé alltaf ljós í myrkrinu – og að hlutirnir geti orðið betri. Hann lyftir þér upp með orðum, ferðaplönum eða hlátri, og hjálpar þér að sjá lífið frá nýju sjónarhorni.


