Stjörnumerkin og samkenndin – Ljónið

Samkennd er þýðing á enska orðinu „compassion”. „Self-compassion” er svo þýtt sem samkennd í eigin garð – samkennd sem þú beinir að sjálfri eða sjálfum þér. Við eigum nefnilega oft auðveldara með að sýna öðrum samkennd en okkur sjálfum.

Hvernig tjá stjörnumerkin samkennd? Hvaða stjörnumerki er með mestu samkenndina? Hér má sjá hvernig stjörnurnar sýna öðrum samkennd:

Ljónið
23. júlí — 22. ágúst

Ljónið sýnir samkennd með tryggð og styrk. Það vill verja þá sem það elskar og vera bjart ljós þegar aðrir eru í myrkri. Ef þú ert niðurdreginn, mun ljónið segja: “Þú ert búin/n að gleyma hversu frábær þú ert – ég ætla að minna þig á það.”