Stjörnumerkin og samkenndin – Tvíburinn

Samkennd er þýðing á enska orðinu „compassion”. „Self-compassion” er svo þýtt sem samkennd í eigin garð – samkennd sem þú beinir að sjálfri eða sjálfum þér. Við eigum nefnilega oft auðveldara með að sýna öðrum samkennd en okkur sjálfum.

Hvernig tjá stjörnumerkin samkennd? Hvaða stjörnumerki er með mestu samkenndina? Hér má sjá hvernig stjörnurnar sýna öðrum samkennd:

Tvíburinn
21. maí – 21. júní

Tvíburinn sýnir samkennd með orðum – hann hlustar, talar, spyr og reynir að skilja. Hann getur þó átt erfitt með djúpa þögn, því hann vill gera þér gott með samtali, hlátri og léttleika.