Árin 2000 – 2023

Árið 2002

Sigrún Klara Hannesdóttir (f. 1943), skipuð í embætti Landsbókavarðar, fyrst kvenna

Árið 2003

Feministafélag Íslands stofnað.

Árið 2005

Kvennafrídagurinn haldinn í þriðja sinn.

Árið 2005

Kristín Ingólfsdóttir (f. 1954) skipuð rektor Háskóla Íslands, fyrst kvenna við Háskóla Íslands

Árið 2008

Elín Sigfúsdóttir (f. 1955) verður bankastjóri, fyrst kvenna.

Árið 2008

Margrét Frímannsdóttir (f. 1954) varð fyrst kvenna til að gegna starfi forstöðumanns við fangelsi á Íslandi.

Árið 2008

Sigríður Th. Erlendsdóttir (f. 1930), brautryðjandi í rannsóknum á sögu íslenskra kvenna var gerð að heiðursfélaga Sögufélagsins, fyrst kvenna

Árið 2009

Ásta Dís Óladóttir (f. 1972) er fyrst ís­lenskra kvenna til að gegna stöðu deild­ar­for­seta viðskipta­deild­ar við há­skóla á Íslandi

Árið 2009

Jóhanna Sigurðardóttir (f. 1942) varð forsætisráðherra, fyrst íslenskra kvenna. Ríkisstjórn skipuð jafnt konum og körlum í fyrsta sinn

Árið 2010

Kvennafrídagurinn haldinn í fjórða sinn

Árið 2010

Lög um kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja samþykkt í hlutfallinu 40/60.

Árið 2010

Ein hjúskaparlög. Breytingar á hjúskaparlögum tóku gildi þar sem einstaklingum er gert frjálst að giftast einstaklingi af sama kyni.

Árið 2011

 Fyrsta Druslugangan haldin á Íslandi.

Árið 2012

Agnes Sigurðardóttir (f. 1954) kjörin biskup Íslands, fyrst íslenskra kvenna

Árið 2014

Sig­ríður Björk Guðjóns­dótt­ir tekur við embætti lög­reglu­stjóra á höfuðborg­ar­svæðinu, fyrst kvenna

Árið 2015

100 ára kosningarétti kvenna fagnað.

Árið 2016

Kvennafrídagurinn haldinn í fimmta sinn.

Árið 2018

Alma Dagbjört Möller (f. 1961) skipuð Landlæknir, fyrst kvenna í 258 ára sögu embættisins.

Árið 2018

Kvennafrídagurinn haldinn í sjötta sinn.

Árið 2019

Hrefna Róbertsdóttir (f. 1961) skipuð í embætti þjóðskjalavarðar, fyrst kvenna.

Árið 2020

Hildur Guðnadóttir, (f. 1982), tónlistarmaður og tónskáld, fyrst Íslendinga til að vinna Óskarsverðlaun.

Árið 2023

Kvennafrídagurinn var haldinn í sjöunda sinn.