
Stórstjarnan og goðsögnin Eric Cantona mun koma til með að halda til á Hólmavík á næstunni en hann verður einn af leikurum kvikmyndar, sem ber vinnuheitið Siglufjörður. Leikstjóri myndarinnar er hinn baskneski Mikel Aguirresarobe og fjallar myndin um hin svokölluðu Baskalög og afnám þeirra árið 2015. Þetta kemur fram á heimasíðu Strandabyggðar:
„Grunnur myndarinnar byggir á Baskalögunum svonefndu og afnámi þeirra árið 2015 – einnig sjáum við síðustu Baskana myrta af mönnum Ara í Ögri fjórum öldum fyrr. Baskneski lögræðingurinn Koldo er sendur með fulla tösku af seðlum til Íslands að kaupa fiskvinnslu rétt áður en lögin eru afnumin. Íslendingarnir komast á snoðir um peningana og ætla að láta Koldo hverfa og peningana um leið. Koldo á fótum fjör að launa meðfram því að sinna vinnu sinni og kaupa fiskvinnsluna og komast undan lögreglunni sem finnst Baskinn grunsamlegur í meira lagi.“
Hólmvíkingar munu taka þessu verkefni opnum örmum og mun bærinn væntanlega iða af lífi á næstunni.














