Jólin nálgast óðfluga og sólin lækkar á lofti. Við bætum það þó upp með fallegri lýsingu, kertum og jólaseríum. Allir á þönum og nóg að gera. En hvað segja stjörnurnar okkur um komandi mánuð?
Hrúturinn
21. mars – 19. apríl
Orkan í kringum þig í desember verður í senn róandi og hvetjandi. Þú byrjar mánuðinn á því að líta svolítið inn á við, kannski eftir frekar annasamt haust og það er eitthvað við rútínuna í kringum hátíðarnar sem hjálpar þér að finna fókusinn aftur. Þú ert vön/anur að keyra þig áfram á krafti og eldmóði, en núna kemur þú að því að mýkri nálgun virkar miklu betur. Hvort sem þú ert að vinna að persónulegu markmiði, sambandi eða verkefni sem þú hefur ætlað þér að klára áður en árið rennur sitt skeið, þá á lífið að gefa þér smá pláss til að jafna taktinn.
Samskipti verða sérstaklega mikilvæg. Þú finnur að fólk leitar meira til þín, ekki bara til að fá ráð heldur vegna þess að nærvera þín er orðin jarðbundnari og meira róandi en hún hefur verið í mörg ár. Hlýja þín og húmor koma upp á yfirborðið án nokkurrar áreynslu. Þú átt auðvelt með að koma hlutum á framfæri án þess að valta yfir neinn, sem er jákvæð breyting og fær þig til að standa enn betur með sjálfri/um þér. Þetta gagnast þér sérstaklega í lok mánaðar, þegar óvænt tækifæri tengt starfi, námi eða ferðalögum kemur í fangið á þér
Í ástinni verða hlutirnir bæði skemmtilegir og lausir við óþarfa dramatík. Þeir sem eru í sambandi finna að desember hjálpar þeim að sameinast í nýjum plönum, hvort sem þau snúast um heimili, fjármál eða framtíðardrauma. Einhleypir hrútar munu finna að fólk tekur eftir þeim þegar þeir eru afslappaðir og leyfa sínu náttúrulega aðdráttarafli að njóta sín.
Seinni hluti mánaðarins tengist gleði, hlátri, smá sjálfstrausti sem bætist við og þeirri tilfinningu að þú sért á réttri leið.


