Stjörnuspá fyrir desember 2025 – Nautið

Jólin nálgast óðfluga og sólin lækkar á lofti. Við bætum það þó upp með fallegri lýsingu, kertum og jólaseríum. Allir á þönum og nóg að gera. En hvað segja stjörnurnar okkur um komandi mánuð?

Nautið
20. apríl – 20. maí

Þú verður minnt/ur á það í desember hvað sköpunarkraftur getur verið einfaldur, hlýr og hversdagslegur. Það er gott jafnvægi milli hreyfingar og hvíldar hjá þér og þér finnst lífið vera að segja þér að njóta rólegheitanna því þú átt þau skilið. Fyrstu dagar mánaðarins eru fullir af sælu, þægilegum samverustundum og ákveðinni jarðtengingu sem þú hefur saknað undanfarið. Þegar þú hægir á þér, blómstrar hugmyndaflugið – og það sama gildir um hjartað.

Á vinnu- og verkefnasviðinu færðu góðar fréttir í desember. Þú ert að komast yfir ákveðinn þröskuld sem hefur staðið í vegi þínum frá því á seinasta ári. Hvort sem um er að ræða fjármál, breytingu í starfi eða einfaldlega þinn eigin lífsstíl, þá færir mánuðurinn þér þægilegan innblástur. Það er ekkert dramatískt við hann – bara stöðug, heiðarleg og traust orka, akkúrat eins og nautinu líkar best.

Í samböndum mun þolinmæði þín skila sér margfalt. Ef þú ert í sambandi verður desember mjög ljúfur mánuður þar einlægni og samstaða eru í forgrunni. Ef þú ert einhleyp/ur er mánuðurinn frábær til að kynnast einhverjum í gegnum vinahóp, áhugamál eða rólegar samverustundir – lítið stress, engin keppni, bara flæði.

Seinni hluti mánaðarins verður sérstaklega góður. Þú færð aukna orku og langar til að næra heimilið, skreyta, baka eða skapa rými þar sem þér líður eins og þú sért í þínu eigin litlu „búbblu“. Þú gerir þér líka grein fyrir að lífið hefur verið að undirbúa þig fyrir nýja upphafslínu sem kemur í byrjun 2026.