Þrír á spítala eftir að ökufantur keyrði á annan bíl

Þrír voru fluttir á Landspítalann eftir að eftirför lauk á frárein frá Reykjanesbraut að Breiðholtsbraut í Reykjavík á ellefta tímanum í gærkvöld. Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um málið skömmu fyrir klukkan tíu, en þá var bifreið ekið á ofsahraða frá Suðurnesjum og eftir  Reykjanesbraut áleiðis að Hafnarfirði. Þar hófst eftirför embættisins, en fyrrnefndri bifreið var ekið eftir Reykjanesbraut um Hafnarfjörð, Garðabæ, Kópavog og Reykjavík, en þar lauk eftirförinni þegar ökufanturinn ók aftan á aðra bifreið. Við áreksturinn höfnuðu báðar bifreiðarnar utan vegar. Tveir voru í bifreiðinni, sem ekið var á og voru báðir fluttir á slysadeild, en ekki er talið að meiðsli þeirra séu alvarleg. Ökufanturinn, piltur undir tvítugu, var handtekinn á vettvangi og í framhaldinu fluttur á Landspítalann til aðhlynningar.

Ekki þarf að fara mörgum orðum um alvarleikann að aka með þessum hætti, en ljóst er að ökufanturinn stofnaði lífi og heilsu annarra vegfaranda í mikla hættu með aksturslagi sínu. Í Hafnarfirði ók hann jafnframt stuttlega inn í  Áslandshverfið á meðan eftirförinni stóð. Lögreglumenn settu út tvær naglamottur, aðra í Hafnarfirði og hina í Garðabæ, þegar reynt var að stöðva ökufantinn.

SHARE