Charlie Sheen trylltist á Feðradaginn: „Denise er hræðileg móðir!”

Charlie Sheen, sem að öllu jöfnu geislar af manngæsku (eða ekki) tók Feðradaginn nú á sunnudag með trompi. Stjarnan trylltist á Twitter, ritaði þar opið bréf til Denise Richards fyrrum eiginkonu sinnar og barnsmóður sinnar og nýtti tækifærið jafnframt til að hæla hinni barnsmóður sinni, Brooke Mueller í hástert.

Charlie sparaði ekki stóryrðin fremur en fyrri daginn og hafði meðal annars þetta að segja:

1308378284349959082

Hvaða kona vill ekki einmitt lesa þessar línur á tyllidögum sem Feðradagurinn vissulega er vestanhafs? En Charlie lét ekki hér við sitja, og þó teymi hans (að öllum líkindum) hafi eytt út tístinu, spýtti sjónvarpsstjarnan geðilla í lófana, skrifaði opið bréf til fjölmiðla og jós fúkyrðum yfir fyrrum eiginkonu sína, sem hann segir meðal annars hafa vélað 30 milljónir Bandaríkjadala út úr honum blásaklausum – en samkvæmt Charlie er Denise, sem hann hafði áður hafið upp í guðatölu – versta móðir heims.

Sjá einnig: Charlie Sheen greiðir skuldir Lindsay Lohan

Charlie-Sheen-Evicts-Denise-Richards-and-Their-Daughters-from-His-Mansion-432880-2Parið á tvær dætur saman en Denise fékk heldur kaldar kveðjur frá Charlie á Feðradaginn

Þó Charlie hafi einnig skömmu síðar (einhverra ástæðna vegna) einnig eytt bréfinu af Twitter, er hægt að lesa orðræðuna í heild sinni hér þar sem ekki er annað að sjá en að maðurinn sé ljóðskáld, en ekki bara leikari.

Sjá einnig: Christina Aguilera kaupir risastórt hús – Er nágranni Charlie Sheen

denise4Liðnir eru dagar víns og rósa; Charlie og Denise á brúðkaupsdaginn

Þess má geta að Denise sótti formlega um skilnað frá leikaranum árið 2005, en fyrrum parið á tvær dætur saman og stóð Denise lengi við bakið á fyrrum eiginmanni sínum þegar geðrænt niðurbrot leikarans (#tigerblood þar með talið) komst í hámæli hér um árið.

Sjá einnig: Charlie Sheen gekk í það heilaga um helgina á Íslandi – Fékk sér líka nýtt flúr – Myndir

123700656Charlie dásamar Brooke í hástert, en hún sótti einmitt um nálgunarbann árið 2013

En Charlie virðist ekki par hrifinn af Denise í dag, sem reyndar hafnaði rausnarlegu boði Charlie um að eyða jólum með honum fyrir skemmstu, með þeim afleiðingum að hún gengur nú undir viðurnefninu versta móðir heims.

„Ég er sannleikurinn” staðhæfði leikarinn meðal annars í bréfinu og því ekki annað að sjá en að Charlie gamli Sheen sé enn í fullu fjöri, en hvorug fyrrum eiginkona leikarans hefur gefið út opinbera yfirlýsingu vegna málsins.

SHARE