Mjólkurhristingur með banana og hnetusmjöri – Uppskrift

Bragðgóður sumardrykkur!

Fyrir  2

Efni : 

  • 1-1/2 stór, frosinn banani (ekki henda þroskuðum banönum, skerið þá í bita og frystið til að nota seinna, t.d. í svona hristing!)
  • 1/2 bolli undanrenna
  • 1/2 bolli matreiðslurjómi
  • 2 msk. sykur
  • 1/8 tsk. vanillu dropar
  • 1/3 bolli hnetusmjör
  • 1/3-1/2 bolli þeyttur rjómi- ef vill

Aðferð: 

  1. Setjið allt upptalið efni í blandara og blandið á hægum hraða. Drykkurinn á vera þykkur. Ef ykkur finnst hann ekki nógu þykkur er hægt að bæta smá vanillu ís út í. Sumir láta nokkrar hnetur ofan á drykkinn  til skrauts.(sjá mynd)  Breytir engu!!

 

SHARE