Sonur minn liggur nú á gjörgæslu

Móðir ungs drengs setti inn þessa færslu á Facebook sem við vildum leggja okkar að mörkum til þess að finna náungan.
Endilega deilið þessu kæru vinir.

Elsku strákurinn minn lenti í hrikalegu óhappi í dag þegar hópurinn hans var að koma ríðandi heim ca 20 metra fráhesthúsinu þegar bíll kemur og keyrir glæfralega og flautar og flautar á hestahópinn sem tryllist og allir litlu hestaknaparnir duttu af og meiddust. ekki náðist numerið en við vonum að sá hinn sami sjái þennan status – drengurinn minn liggur nú á gjörgæslu eftir að sneiðmyndataka sýnir að hann er með rofna lifur og innvortis blæðingar í kviðarholi og mikið krambúleraður en óbrotinn þó hann sé óskaplega mikið marinn allstaðar. Við þökkum Guði fyrir að ekki fór verr og hann sé ekki í lífshættu en það er stöðugt fylgst með hvort að blæðingin aukist hjá honum og þess vegna erum við hérna á gjörgæslunni.
Ég vona svo innilega að ef sá hinn sami sem keyrði og flautaði á börnin eins og vitleysingur sjái sóma sinn í þvi að gera þetta aldrei aftur og gef sig fram því börnin eru í áfalli og misillafarin á líkama og sál.
Drengurinn minn gæti legið á milli heims og helju en ég þakki guði fyrir hverja mínótu sem hann er stabíll. en við taka strembnar vikur á meðan lifrin grær.
Þakka öllu yndislega starfsfólkinu á slysó í fossvogi og gjörgæslunni fyrir andlegan stuðning og góðmennskuna og hlýjuna við sterka strákinn minn.

Ef einhver bara einhver veit um fólk á þessari leið um 15,45 í dag á leið sinni i hestahverfið í andvara þá bið ég það um að veita okkur lið að upplýsa okkur um hvaða manneskja gerir svona lagað. Við eigum þo enn eftir að fá nánari lýsingu á bílnum.

Tekið af Facebook færslu Sigurbjargar sem má finna hér.

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here