Stjörnuspá fyrir júní 2025 – Krabbinn

Krabbinn
22. júní – 22. júlí

Þú ert mjög meðvituð/aður um tilfinningar annarra og finnur sterkt fyrir þeim tengslum sem skipta mestu. Fjölskylda og vinir leita til þín vegna hlýju þinnar og næmni. Þú gætir þó þurft að setja skýr mörk, sérstaklega á það við um fólk sem tekur orku frá þér. Þú styrkir tengsl þegar þú tjáir þig af hreinskilni, en með mýkt.

Rómantíkin er í hámarki þegar þú opnar hjartað og þú ert tilbúin/n til að gefa af þér. Sambönd sem hafa dregist á langinn fá annað tækifæri og möguleiki er á að dýpka traust og kærleika. Einhleypir Krabbar laðast að þeim sem kunna að hlusta og skilja, ekki bara þeim sem „líta vel út“.

Þér hentar að eiga rólegt og fallegt sumar. Tími með fjölskyldu, heimsóknir í sumarbústað eða bara eitthvað út á land er endurnærandi. Þú finnur jafnvægi á milli þess að gefa og þiggja og þegar þú slakar á kemur orkan sjálfkrafa aftur. Leyfðu þér að taka á móti öllu því sem sumarið býður upp á, en án þess að keyra þig áfram af krafti sem þú átt ekki til.