Stjörnuspá fyrir júní 2025 – Tvíburinn

Tvíburinn
21. maí – 21. júní

Júní er þinn tími, elsku Tvíburi og þú ert með munninn fyrir neðan nefið og hugmyndirnar sem fljúga um huga þinn eru óteljand. Þú átt marga vini og átt auðvelt með að mynda ný tengsl. Það er þó mikilvægt að vera meðvitaður um hvernig áhrif orð þín hafa – það sem virðist létt í þínum augum getur þótt aðeins þyngra í augum annarra. Notaðu þessa orkuríku og vitsmunalegu tíma til að byggja brýr en ekki veggi.

Ástarmálin eru litrík og breytileg, rétt eins og þú sjálf/ur. Þeir sem eru einhleypir gætu átt í erfiðleikum með að velja, en það er líka skemmtilegt að kynnast nýju fólki og sjá hvert hlutirnir leiða. Í föstum samböndum er mikilvægt að viðhalda spennu með því að gera eitthvað nýtt saman – hvort sem það er ferðalag eða einfaldlega kvöldganga með góðu samtali.

Þú verður á ferð og flugi í sumar og það hentar þér vel. Skipuleggðu viðburði sem örva hugann – listahátíðir, námskeið eða menningartengdar ferðir. Þú finnur hvatningu til að læra, skapa og deila með öðrum. Þetta er tími til að lifa, hlæja og gefa umhverfi þínu af gleði þinni.