Stjörnuspá fyrir júní 2025 – Steingeitin

Steingeitin
22. desember — 19. janúar

Í júní verður mikil áhersla á samvinnu og skýrleika í samskiptum. Þú gætir fundið fyrir aukinni ábyrgð í tengslum við aðra – hvort sem er í vinnu eða fjölskyldulífi. Aðrir leita til þín eftir leiðsögn, en ekki gleyma að hlusta líka. Tíminn hentar vel til að styrkja tengsl sem byggja á trausti og virðingu. Ef eitthvað hefur verið ósagt lengi, þá er þetta rétti tíminn til að ræða það með festu og yfirvegun.

Þó þú sért oft varkár í ástarmálum, þá gæti júní komið þér á óvart. Rómantíkin verður jarðbundin en heillandi – tengingar sem myndast núna verða dýrmætar og raunverulegar. Ef þú ert í sambandi gæti þetta verið góður tími til að taka næsta skref – sameiginlegar ákvarðanir um framtíðina liggja í loftinu. Ef þú ert ein/n gæti einhver komið inn í lífið þitt sem deilir lífssýn þinni og metnaði. Þetta er ekki mánuður fyrir leiki – heldur fyrir eitthvað sem gæti orðið til framtíðar.

Sumarið byrjar með jarðtengingu og skýrleika – þú ert að stilla þig inn á hvað þú vilt gera á næstu mánuðum. Júní hentar vel til að leggja grunn – hvort sem það er fjárhagslegur, faglegur eða persónulegur grunnur. Þú gætir fundið fyrir þörf til að endurskoða markmið þín eða jafnvel gera róttækar breytingar á rútínu þinni. Líkamleg heilsa og innri jafnvægi verða líka í fókus – og með smá aga verður sumarið bæði uppbyggilegt og endurnærandi.