
Þór Tulinius kom til mín fyrir skemmstu í hlaðvarpið Fullorðins og sagði mér frá lífi sínu hingað til. Hann segir að hann hafi að miklu leyti unnið fyrir sér með því að vinna sem leiðsögumaður á Íslandi en hann er alltaf að vinna við leiklistina og skrif.
Þór fæddist í Reykjavík og faðir hans starfaði sem læknir og fluttist fjölskyldan til Færeyja þegar Þór var 2 ára. Þaðan fóru þau til Þýskalands og svo í 5 og hálft ár í Bandaríkjunum en faðir hans var að sérhæfa sig í krabbameinslækningum. „Ég man fyrst eftir mér í Houston í Texas,“ segir Þór en þau fóru svo til Albany og Þór segist hafa talað með miklum hreim þegar hann kom til Íslands, frá 8-10 ára aldurs. Þá flutti fjölskyldan til Frakklands þar sem Þór bjó í 5 ár, áður en hann kom heim aftur.
Þór segist hafa verið frekar virkur krakki og sjálfsagt hefði hann fengið einhverja greiningu ef hann væri krakki í dag. Hann flutti til Íslands 15 ára og bjó með bræðrum sínum og upplifði mikið sjálfstæði og hóf nám við Menntaskólann í Hamrahlíð. Hann tók virkan þátt í félagslífinu og segist ekki hafa haft hugann við námið en útskrifaðist með stúdentspróf.
Þór segir að leiklistin hafi alltaf togað í hann og en afi hans var ágætlega þekktur leikari hér á landi, Brynjólfur Jóhannesson og fór í leiklistarnám bæði hérlendis og erlendis.
„Ég er náttúrulega alki og er í 12 spora samtökum og hætti að drekka 28 ára, mánuði eftir að dóttir mín fæddist. Ég þróaði þennan alkóhólisma hægt og rólega og var að drekka illa og „deyja“ og svo jókst alltaf drykkjan og ég náði alltaf að halda vinnunni. Í minni fjölskyldu var „drykkjan er allt í lagi á meðan þú tollir í vinnu“,“ segir Þór en undir það síðasta á hans drykkjuferli segir hann að honum hafi reynst erfitt að halda öllu saman.
Þór segir okkur frá sinni eigin baráttu og baráttu dóttur sinnar við átröskun og alkóhólisma. Þátturinn er kominn út í fullri lengd og hægt er að hlusta og horfa á hann hér að neðan, Spotify og öðrum hlaðvarpsveitum.
Sjá einnig:
- Focaccia – Ítalskt brauð

- Fíkniefnið sem fáir foreldrar þekkja – Spice

- Lögreglan leitar manns

- Hver er meðallífaldur hunda? – Listi eftir tegundum

- Karlmenn nota líka afsakanir til að stunda ekki kynlíf

- Þór: „Ég þróaði alkóhólismann með mér hægt og rólega“


Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.














