Æðisleg baka með ætiþistli og feta osti – Uppskrift

Flott en einföld baka 

Galdurinn er léttur og stökkur botn með ætiþistli og feta osti. Með grænu saladi – að ekki sé nú minnst á kalt hvítvínsglas líka verður þetta fullkomin, létt máltíð.    

Fyrir  6

Efni:

  • 1/3 bolli rjómi
  • 115 gr. feta ostur
  •  salt og pipar
  • pakki af „filó“ deigi (fæst frosið) Þú getur líka búið til pizzabotn eða keypt annarskonar botn.
  • 1 glas (225 gr.) ætiþistlar, saxaðir
  • 1 msk. ólivuolía
  • 1 þeytt egg
  • mulinn parmesían ostur (ef vill)
  • ný steinselja (ef vill)

Aðferð:

  1. Hitið ofninn upp í 180˚ C. Berið svolitla olíu á ofnplötu.
  2. Blandið saman feta ostinum og rjómanum (í blandara), kryddið með salti og pipar.
  3. Látið deigið (botninn) á plötuna og smyrjið fetaost blöndunni á hann. Raðið ætiþistlinum á botninn og dreifið ólívuolíunni yfir. Berið eggjahræruna á brúnir botnsins.
  4. Látið bakast í  10-15 mín. eða þar til deigið er orðið ljósbrúnt. Látið kólna aðeins og stráið parmesían osti yfir bökuna, skreytið með steinselju og njótið svo vel!

 

SHARE