
Steinunn Lóa lést 19. maí síðastliðinn við fæðingu sonar síns. Eftir sitja unnusti hennar, Hjalti, sonur þeirra á vökudeildinni og stjúpdóttir Steinunnar, Amalía. Aðstandendur þeirra hafa sett af stað söfnun fyrir fjölskylduna og fengum við leyfi þeirra til að birta upplýsingarnar hér:
Þann 19. maí síðastliðinn lést elsku Steinunn Lóa okkar við fæðingu yndislega sonar síns. Hann dvelur enn sem komið er á vökudeild Landspítalans vegna súrefnisskorts í fæðingu. Steinunn skilur einnig eftir sig Hjalta unnustann sinn og Amalíu Erlu stjúpdóttur sína.
Það er ólýsanlega sárt að þurfa að kveðja svona einstaka, fallega og kærleiksríka manneskju alltof snemma.
Steinunn snerti líf svo margra með hlýju sinni, fallega brosinu og þeirri einstöku nærveru sem fylgdi henni hvert sem hún fór. Orðin duga varla til að lýsa missinum sem við finnum öll fyrir.
Við vinkonur Steinunnar Lóu höfum ákveðið að setja af stað söfnun fyrir fjölskyldu hennar til að létta undir á þessum erfiða tíma, svo þau geti einbeitt sér að því sem skiptir mestu máli núna – að syrgja, standa saman og vera hjá litla drengnum sínum.
Fjölskyldan mun að öllum líkindum standa frammi fyrir miklum áskorunum og erfiðleikum í lífinu vegna þessa ólýsanlega áfalls. Framundan er langur og erfiður vegur, bæði andlega, tilfinningalega og fjárhagslega, og því viljum við leggja okkar af mörkum til að styðja þau í gegnum þennan tíma.
Hvert framlag, stórt sem smátt, skiptir máli og er dýrmætur stuðningur á þessum ótrúlega erfiðu tímum.
Reikningsnúmer: 0702-15-053445
Kennitala: 120494-2799
Styrktarreikningurinn er á nafni Hjalta Einarssonar, unnusta Steinunnar.
Við hvetjum alla sem tök hafa á, að styrkja fjölskylduna. Margt smátt gerir eitt stórt.

Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.














