
Bandaríska poppstjarnan Katy Perry hefur í gegnum árin staðið frammi fyrir nokkrum ásökunum um óviðeigandi kynferðislega hegðun. Þó að engin þeirra hafi leitt til sakfellingar hafa málin vakið töluverða umræðu um mörk, samþykki og vald í skemmtanaiðnaðinum.
Eitt þekktasta atvikið átti sér stað árið 2018 í hæfileikaþættinum American Idol, þegar keppandi sagði að Katy hefði kysst hann án samþykkis í áheyrnarprufu. Hann sagði síðar að honum hefði brugðið, þó hann hafi ekki sakað hana formlega um áreitni.
Árið 2019 steig fyrirsætan Josh Kloss fram og hélt því fram að Katy hefði niðurlægt hann í samkvæmi mörgum árum fyrr, þegar hún átti að hafa dregið niður buxur hans fyrir framan aðra gesti. Perry neitaði þeim ásökunum.
Nýlegar ásakanir frá Ruby Rose
Árið 2026 kom fram ný og alvarleg ásökun þegar ástralska leikkonan Ruby Rose sakaði Katy opinberlega um kynferðislegt ofbeldi sem hún segir hafa átt sér stað á næturklúbbi í Melbourne um árið 2010. Ruby sagði að hún hafi verið í byrjun tvítugs þegar atvikið átti sér stað og að það hafi tekið hana nærri tvo áratugi að tala opinberlega um reynslu sína.
„Katy Perry beitti mig kynferðisofbeldi á næturklúbbi í Melbourne,“ skrifaði Ruby á Threads. Hún bætti við: „Ég var með höfuðið í kjöltu vinkonu minnar, til að reyna að losna við hana (Katy) og þá kom hún til okkar, beygði sig í hnjánum, dró nærbuxur sínar til hliðar og nuddaði viðbjóðslegum sköpum sínum við andlitið á mér. Allt þangað til ég opnaði augun og ældi á hana.“
Fulltrúar Katy hafa hins vegar hafnað ásökununum alfarið og kallað þær „algjörlega rangar og hættulegar lygar“. Málið hefur engu að síður vakið mikla athygli í fjölmiðlum og Ruby segist nú, hafa lagt fram kæru á hendur Katy.
Sjá einnig:
- Er hægt að fyrirbyggja heilabilun og Alzheimer?

- 8 hlutir sem þú ættir aldrei að sturta niður í klósettið

- Félagslegur kvíði og hvað er til ráða?

- Af hverju verður koddinn gulur og allur í blettum?

- „Hún nuddaði kynfærum sínum við andlit mitt“

- Segist háður því að hylja sig í húðflúrum















