Á eftir hjólabretti kemur barn!

Berglind Þórðardóttir skrifaði eftirfarandi á Facebooksíðu sína og biður okkur vinsamlegast að deila þessu áfram svo að þessi kona finnist. 

Mig langar að koma á framfæri til skilaboðum til konunnar sem ók yfir hjólabretti sonar míns, Freysa kl 16.00 síðasta fimmtudag fyrir utan Ásbúðartröð 9 í Hafnarfirði. Þau eru einföld: Vinsamlegast gefðu þig fram.

Við Ásbúðartröðina er ekki gangstétt og var drengurinn minn á brettinu á göngustígnum við húsið er hann missir brettið undan sér. Hann hljóp á eftir því í átt að götunni og er kominn á það aftur er þú birtist. Viðbrögð þín eftir að þú keyrðir yfir brettið sem drengurinn stóð á meðan þú brunaðir á of miklum hraða fyrir blindhorn voru þau að opna bílhurðina og argast og skammast í háum tónum við níu ára barn sem var í losti. Í heilt ár er hann búinn að safna fyrir þessu splunkunýja hjólabretti og var að fara á það í annað sinn þegar þú brunaðir yfir það. Í stað þess að hlúa að drengnum og biðjast afsökunar brunaðir þú í burtu eftir að hafa hellt úr skálum reiði þinnar yfir son minn og skildir hann eftir niðurbrotinn.

Hópur vitna sá atburðinn. Sem betur fer fyrir þig, en því miður fyrir drenginn, voru þau of upptekin að hlúa að honum í lostinu til að taka niður bílnúmerið hjá þér. Ef þú ert í kringum sextugt, grönn og með hvítgrátt stutt hár og ekur um á dökkbláum skutbíl eða smájeppa, og jóst þér yfir drenginn minn, þá eru þessi skilaboð til þín. Hefðir þú stungið af ef fóturinn á honum hefði lent undir bílnum?

Málið var tilkynnt lögreglu svo þú getur hvort heldur sem er gefið þig fram við yfirvöld til að bæta drengnum brettið eða beint við okkur. Bretti er ekki bara bretti í augum 9 ára barns, heldur var það fjarlægur draumur, og því tók árið að safna þessum 17 þúsund krónum sem brettið kostaði.

Eftir að drengurinn jafnaði sig af sárasta ekkanum var það fyrsta sem hann sagði: HÚN BAÐST EKKI EINU SINNI AFSÖKUNAR!

Með kærri kveðju,

Berglind

Smelltu hér til að hafa samband við Berglindi.

SHARE