Æðisleg bláberjamúffa – Uppskrift

Langar þig bara í eina bláberjamúffu? 

Hefur þig einhvern tíma langað í eina bláberjamúffu? Hér er auðveld og fljótleg uppskrift!

Efni:

1 kaffikrús

2 msk. möndlumjöl

1msk. kókoshnetumjöl

¼ bolli bláber

½ tsk. vanilludropar

2-3 msk. möndlumjólk (með vanillu ef hún fæst  þannig)

1 eggjahvíta

1 msk. hlyn- eða agave sýróp

Salt

Aðferð:

  1. Látið allt efnið í krúsina og hrærið.
  2. Látið bakast í örbylgjuofni í 2 mín. Takið múffuna úr krúsinni og njótið vel!

 

 

SHARE