Æðisleg vanillukaka með hvítu súkkulaði og Oreokexi

Er ekki upplagt að enda þessa helgi á einni gómsætri köku? Jú, ég held það. Þessi uppskrift er fengin af blogginu hennar Tinnu Bjargar, sem er eitt af mínum uppáhalds.

Sjá einnig: Gómsæt veislubrownie með vanillurjóma

IMG_1812

Vanillukaka með hvítu súkkulaði og Oreokexi

420 g hveiti

400 g sykur

4 tsk lyftiduft

3/4 tsk salt

170 g brætt smjör

370 ml mjólk

3 tsk vanilludropar

3 stór egg

1 pakki Oreo kexkökur

Krem

450 g mjúkt smjör

500 g flórsykur

fræ úr 1 vanillustöng

80 g hvítt súkkulaði  

  • Blandið þurrefnum saman í skál og hrærið mjólk saman við. Bætið eggjum við, einu í einu. Bræðið smjör og hrærið saman við ásamt vanilludropum.
  • Hellið deiginu í tvö 24 cm kökuform.
  • Bakið við 170° í 25-30 mínútur.
  • Kælið botnana.
  • Þeytið smjör og flórsykur saman. Kjúfið vanillustöng í tvennt, skafið fræin úr henni og hrærið saman við. Bræðið hvítt súkkulaði, kælið og blandið saman við kremið.
  • Athugið að gera þarf eina og hálfa kremuppskrift til að skreyta kökuna með rósum.
  • Setjið annan kökubotninn á fallegan disk og smyrjið kremi ofan á. Myljið Oreo kex og sáldrið yfir botninn með kreminu. Leggið hinn botninn ofan á og þekið kökuna með þunnu lagi af kremi.
  • Notið stút 1M eða 2D frá Wilton til að gera rósir, byrjið á miðjunni í rósinni og sprautið svo í hringi.
  • Hægt er að finna mörg kennslumyndbönd á YouTube sem sýna hvernig á að gera rósir. Munið að æfingin skapar meistarann!
Kakan er alveg ótrúlega góð og hentar vel þegar von er á mörgum gestum því sneiðarnar eru stórar og kakan er svo seðjandi.

 

SHARE