Æðislegur pastaréttur með sveppasósu – Uppskrift

Efni:

  • 1 þurrkaður kóngssveppur
  • 2 mtsk smjör
  • 1/4 bolli ólífuolía
  • 2 hvítlauksrif, söxuð smátt
  • 1 stór gulrót, söxuð smátt
  • 1 stilkur sellerí, saxaður smátt
  • 450 gr. ætisveppir sneiddir
  • salt
  • 1 kg. penne pasta (sjá mynd)
  • 1 bolli tómatsósa  (sjá uppskrift)
  • 6 matsk. rjómi
  • 170 gr. rifinn parmesan ostur
  • Tómat sósa:
  • 6 hvítlauksrif, skorin í tvennt
  • 1/2 bolli ólífuolía
  • 4 dósir ( hver dós u.þ.b. 2 bollar ) af hökkuðum tómötum
  • 1 1/2 matsk. sykur
  • 1 1/2 tesk. oregano
  • 1 1/2 tesk. saxað nýtt basilíkum
  • 1/2 tesk. gróft salt
  • 1/2 tesk. svartur pipar

 

 

Aðferð

  • Tómatssósa: Hitið hvítlaukinn í olíunni en látið hann ekki brúnast. Látið allt efnið sem fer í sósuna út í pottinn og sjóðið við hægan hita í 2-4 tíma.
  • Leggið sveppina í bleyti í volgt vatn í 30 mín.  Bræðið smjörið á stórri pönnu,hellið olíunni saman við, hitið og bætið svo hvítlauk, gulrótum og sellerí út í  og eldið þar til allt er orðið mjúkt.
  • Hellið af sveppunum, geymið vatnið og látið sveppina á pönnuna. Látið sjóða í u.þ.b. 5 mín.
  • Látið suðuna koma upp á vatni í stórum potti, saltið og setjið pastað út í (penne þarf að sjóða í 7 mín.) Sigtið vatnið af sveppunum og hellið því á pönnuna, hrærið. Hellið nú tómatsósunni saman við, hrærið.
  • Bætið rjómanum út í og hrærið vel. Hellið vatninu af pastanu, setið það út í sósun og blandið vel. Dreifið ostinum yfir og berið fram.

 

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here