Angelina Jolie og Brad Pitt eru „hugsanlega“ að gera aðra mynd saman!

Angelina hefur tekið sér góða pásu frá kvikmyndum til að hafa meiri tíma til að sinna börnum sínu og þeim verkefnum sem hún vinnur fyrir Sameinuðu þjóðirnar.  Það var haft eftir henni í síðustu viku þegar hún var að kynna „Maleficent“ í Lundúnum að hún og Brad væri að hugsa um að gera aðra mynd saman.  Eins og alþjóð veit þá unnu þau saman að „Mr. and Mrs. Smith“  þar sem þau hófu ástarsamband sitt.  Angelina segist vera ánægð með að geta valið úr skemmtilegum hlutverkum en hugur hennar sé meira við verkefnin fyrir flóttamenn og samtökin Preventing Sexual Violence Initiative.

 

brang

 

bradkid

 

 

SHARE