Besta súkkulaðikakan

Þessi lítur ekkert smá vel út en hún kemur frá Matarlyst. Svo verður hún svo svakalega páskaleg með þessum litlu eggjum ofan á.

Hráefni


250 g hveiti
400 g sykur
125 g kakó
1½ tsk lyftiduft
1½ tsk matarsódi
1 tsk salt
2 egg
200 g mjólk
110 g olía t.d isio4
4 tsk vanilla extrakt eða vanilludropar
120 g volgt vatn
120 g volgt kaffi uppáhelt (má nota vatn í staðinn)

Aðferð

Hveiti, sykur, kakó, lyftiduft, matarsódi, og salt er sett í hrærivélaskálina blandið saman með hrærunni þar til komið er vel saman. Bætið út í eggjum, mjólk, olíu og vanillu hrærið saman í u.þ.b 1 mín. Bætið í lokin út í vatni og kaffi athugið að blandan verður mjög þunn. Setjið í skúffukökuform/ eldfast mót gott er að rífa bökunnarpappír og leggja ofaní formið, hellið deiginu ofaní og sléttið út. Einnig er gott að nota 27-28 cm hring smelluform, smyrjið það að innan og dassið hveiti inní. Bakið við 180 gráður og blástur í u.þ.b 35-40 mín. Kælið áður er smjörkrem er sett á.

Smjörkrem

Þetta smjörkrem er létt og fluffy…

Hráefni

200 g smjör við stofuhita
220 g flórsykur
6 msk kakó (u.þ.b 60 g)
1 egg
1 tsk vanilludropar
1 msk rjómi eða mjólk

Aðferð

Setjið öll hráefni saman í hrærivélaskálina þeytið í ca 10 mín. Setjið ofaná kökuna þegar hún hefur kólnað alveg.

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here