Chrissy Teigen viðurkennir að hafa notað lyf til að grennast

Eiginkona John Legend(46) og fyrirsætan Chrissy Teigen(39) hefur játað það að hún hafi farið að nota Ozempic árið 2020.

Ástæðan fyrir því að fyrirsætan fór að nota Ozempic var þó aðeins öðruvísi en annarra. Chrissy hafði þurft að enda meðgöngu á 20. viku af óviðráðanlegum orsökum árið 2020 og hún segir að eftir það hafi líkami hennar verið fastur í sama farinu: „Ég hafði leyft mér að borða það sem ég vildi á meðgöngunni en þegar ég missti barnið hafði ég þyngst um 18 kg,“ sagði Chrissy í hlaðvarpinu Self-Conscious og þess vegna hafi hún farið á Ozempic.

Chrissy segist hafa fundið fyrir miklu þunglyndi þegar hún horfði á „óléttubumbuna“ sína og það var ekkert barn þar inni. Þau John eignuðust svo sitt fjórða barn árið 2023 með hjálp staðgöngumóður.

SHARE