Dásamleg kaka fyrir þá sem elska hnetusmjör

Þessi dásamlega uppskrift er fengin af blogginu hennar Tinnu Bjargar. Sjálf er ég hnetusmjörsaðdáandi fram í fingurgóma og get ekki beðið eftir því að hræra í eina svona.

Sjá einnig: Æðisleg frönsk súkkulaðikaka með hnetusmjörskremi

10301544_245527708973801_6134674878978135240_n

Hnetusmjörshnallþóra

Hnetusmjörsbotnar

1 1/2 bolli hveiti

2 tsk lyftiduft

1/2 tsk matarsódi

1/2 tsk salt

1/3 bolli olía

1/3 krukka hnetusmjör

1 bolli púðursykur

2 egg

1 tsk vanilludropar

1 bolli AB mjólk

Blandið saman í skál hveiti, lyftidufti, matarsóda og salti og leggið til hliðar. Hrærið saman í aðra skál olíu, hnetusmjöri og púðursykri. Bætið því næst við eggjum, vanilludropum og AB mjólk. Sigtið að lokum þurrefnin út í blautefnin og hrærið vel og vandlega saman. Smyrjið tvö smelluform og sníðið síðan bökunarpappír ofan í botn formanna svo auðveldara sé að leysa kökubotnana að bakstri loknum. Skiptið deiginu jafnt á milli forma og bakið við 170° í 30-35 mínútur eða þar til prjónn, sem stungið er í miðju kökubotnanna, kemur út hreinn. Kælið kökubotnana í formunum og leysið þá síðan úr.

Brownie-botn

1 pakki tilbúið brownie mix

Blandið kökudeigið samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum. Smyrjið smelluform og sníðið bökunarpappír í botn þess.  Hellið deiginu í formið og bakið brownie-botninn samkvæmt leiðbeiningum, jafnvel um fimm mínútum lengur. Kælið brownie-botninn og leysið hann síðan úr forminu.

Hnetusmjörskrem

450 g mjúkt smjör

300 g rjómaostur

600-700 g flórsykur

2/3 krukka hnetusmjör

2 tsk vanilludropar

Þeytið smjör þar til það verður kekkjalaust. Bætið rjómaosti saman við og þeytið áfram þannig að blandan verði silkimjúk. Hrærið að lokum flórsykri saman við ásamt hnetusmjöri og vanilludropum.

Súkkulaðikrem

200 g suðusúkkulaði

3 msk hnetusmjör

3 msk sýróp

100-120 ml rjómi

Bræðið súkkulaði, hnetusmjör og sýróp saman í potti og takið af hellunni. Það er eðlilegt að áferðin á súkkulaðiblöndunni sé skrýtin. Hrærið rjómanum síðan saman við heita súkkulaðiblönduna þar til kremið verður silkimjúkt. Kælið kremið að stofuhita.

Setjið annan hnetusmjörsbotninn á kökudisk og smyrjið hæfilega þykku hnetusmjörskremlagi yfir. Leggið brownie-botninn ofan á og smyrjið öðru lagi af hnetusmjörskremi yfir. Leggið síðan hinn hnetusmjörsbotninn ofan á og þekið alla kökuna vel og vandlega með hnetusmjörskremi. Hellið súkkulaðikremi jafnt yfir kökuna og látið leka niður með hliðunum.

SHARE