Dásamlega ljúffeng myntuskyrkaka

Þetta hnossgæti kemur af sælkerablogginu hennar Tinnu BjargarÞað er alveg tilvalið að smella í eina svona í dag – við erum mörg hver í fríi og þá má nú alveg gera dálítið vel við sig, er það ekki?

IMG_1688

Ljúffeng myntuskyrkaka

Botn:

1 pakki Bastogne Duo kex frá Lu

100 gr smjör

Fylling:

500 gr hreint skyr

1 vanillustöng

1 dl flórsykur

250 ml þeyttur rjómi

4 blöð matarlím

4 msk rjómi

100 gr suðusúkkulaði

lauf af 6 myntustilkum

Krem:

50 gr Pipp með piparmyntu

3 msk rjómi

IMG_1675

Myljið kexið í matvinnsluvél eða mortéli, bræðið smjör og blandið saman í skál.

IMG_1687

Þrýstið blöndunni í botninn á smelluformi og upp með hliðunum. Kælið í ísskáp á meðan fyllingin er gerð.

IMG_1672

  • Setjið skyrið í skál, skerið vanillustöngina endilanga og skafið fræin úr henni með hnífsoddi. Þeytið vanillufræjum saman við skyrið og bætið flórsykri við. Ég kýs að nota vanillustangir eða -dropa því mér þykir vanillusykurinn svo bragðlítill.
  • Blandið þeyttum rjóma varlega saman við skyrið.
  • Leggið matarlímsblöð í skál með vatni þar til þau eru orðin mjúk. Hellið svo vatninu af þeim og setjið í pott ásamt 4 msk af rjóma. Bræðið saman við vægan hita og passið að matarlímsblandan brenni ekki.
  • Kælið þar til blandan er orðin volg og hellið svo út í skyrfyllinguna í mjórri bunu, hrærið stanslaust á meðan.

IMG_1686

  • Saxið súkkulaðið og myntuna smátt og blandið saman við.
  • Smyrjið fyllingunni á kexbotninn í smelluforminu og kælið þar til kakan er orðin stíf.
  • Bræðið Pipp saman við 3 msk af rjóma, kælið og hellið yfir kökuna. Passið að kremið sé ekki svo volgt að það bræði fyllinguna.
  • Ég ber kökuna fram á botninum úr forminu en hægt er að klæða hann með smjörpappír, sem sniðinn hefur verið ofan í formið, til að auðvelda að færa kökuna af botninum.
  • Mér finnst kakan verða ferskari með hreinu skyri, vanillustöng og flórsykri en til að einfalda uppskriftina má nota tilbúið vanilluskyr.

IMG_1694

Bakið þessa í dag og bjóðið í kaffi.

Gleðilegt sumar!

SHARE