Dásamlegur hummus – Uppskrift

Ég fæ mér stundum hummus og nýbakað brauð, með fullt af grænmeti og það er ofsalega góð máltíð.
Hér fyrir neðan er sú uppskrift af hummus sem mér finnst ótrúlega góð.
Hummus má líka setja á hrökkex t.d en það er ofsalega gott
Best er að nota matvinnsluvél til að búa til hummus.

Einn skammtur fyrir 3-4

Innihald

1 dós (240 g án vökvans) soðnar/niðursoðnar kjúklingabaunir, hellið vatninu af
2 msk tahini (sesammauk)
1,5 msk sítrónusafi
0,25 tsk cumin (ekki kúmen)
Smá klípa cayennepipar eða paprika
1-2 stór hvítlauksrif, afhýdd og söxuð smátt
2 msk eða meira af vatni eða sojamjólk (má sleppa)
1-2 msk ólífuolía (sumir nota meiri ólífuolíu)
1 tsk tamarisósa
Svartur pipar eftir smekk
Aðferð

Ef maður hefur nægan tíma er gott að losa hýðið af niðursoðnu kjúklingabaununum. Mér finnst bragðið verða betra en þetta er algjörlega smekksatriði og ekki nauðsynlegt að gera. Til að losa hýðið af kjúklingabaunum er gott að leggja þær í um 5 mínútur í skál með vatni og nudda þær varlega með fingrunum. Við það flýtur hýðið upp á yfirborðið. Það þarf ekki að gera þetta en er samt mjög gott, mér finnst hummusinn verða betri svoleiðis. Ekki hugsa mikið um notaðar augnlinsur meðan þið gerið þetta, maður gæti misst matarlystina!!
Hellið öllu vatni af kjúklingabaununum og setjið þær í matvinnsluvél. Maukið í 10 sekúndur.
Afhýðið hvítlaukinn, saxið hann smátt/pressið hann og bætið honum út í ásamt cayennepipar, cumin, sítrónusafa, tamarisósu og tahini.
Maukið allt saman í um 30 sekúndur eða skemur ef þið viljið grófari áferð.
Kryddið með meiri tamarisósu og svörtum pipar. Einnig má bæta aðeins við af tahini ef þið viljið meira bragð af því.
Ef þið viljið hummusinn aðeins mýkri, má bæta vatni eða sojamjólk út í hummusinn.
Berið fram í skál og dreifið smá klípu af cayenne pipar yfir. Einnig er gott að setja 1 tsk af ólífuolíu í miðjuna á hummusinum (búið til smá dæld í hummusinn og hellið ofan í).

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here