Demi Lovato ætlaði að hætta á Twitter og Instagram

LOS ANGELES, CA - AUGUST 30: Singer Demi Lovato attends the 2015 MTV Video Music Awards at Microsoft Theater on August 30, 2015 in Los Angeles, California. (Photo by Jason Merritt/Getty Images)

Demi Lovato (23) tilkynnti á mánudaginn síðastliðinn að hún væri hætt á Twitter og Instagram, en nú er svo komið að hún hefur skráð sig aftur inn.  Hún ætlaði þó að halda sig við Snapchat, en svo virðist sem hún sé mjög pirruð yfir þessum tveimur samfélagsmiðlum. Demi segir að henni líki við Snapchat, því þá þurfi hún ekki að sjá ummæli frá fólki úti í heimi um sig.

Sjá einnig: Demi Lovato og Wilmer Walderrama hætt saman

Demi er með 36 milljón fylgjendur á Twitter en 41 milljónir á Instagram, en gaf þó ekki nákvæmlega út ástæðuna fyrir því að hún hætti, en segir meðal annars að hún hafi eitt sinn stofnað samtök fyrir fólk, sem hefur ekki efni á því að verða sér út um geðheilbrigðsþjónustu. Henni finnst súrt að fólk einblíni alltaf á röngu hlutina í stað þess að horfa á það góða og finnst því að fólk geti bara átt sig, ef það ætlar að vera með leiðindaummæli í hennar garð.

Afeitrun hennar á þessum samfélagsmiðlum tók einungis 24 klukkustundir, svo aðdáendur hennar þurfa ekki að örvænta, þar sem hún er komin aftur!

 

358198B700000578-3651807-image-m-194_1466491229342

demi

demi1

SHARE