Nafn unga mannsins sem lést í fallhlífarstökki

Ungi maðurinn sem lést fyrir utan Óðinsvé í Danmörku á sunnudaginn hét Tristan Magni Hauksson. Hann var aðeins 24 ára gamall. Vísir greindi fyrst frá

Verið er að rannsaka slysið hjá lögreglunni í Danmörku en Tristan var að stökkva sitt fyrsta einstaklingsstökk þegar fallhlíf hans opnaðist ekki með eðlilegum hætti.

Tristan kom frá Selfossi en fluttist nýlega til Danmerkur til að stunda þar nám við lýðháskóla.

Við sendum aðstandendum Tristans okkar dýpstu samúðarkveðjur.

SHARE