Dýrasti leikur allra tíma – GTA5 í forsölu í kvöld – Kvöldopnun og skemmtun í Kringlunni

gta

Gamestöðin verður með sérstaka kvöldopnun vegna útgáfu leiksins í Kringlunni í kvöld og verður búið að breyta anddyrinu fyrir framan Gamestöðina í skemmtistað og þar verður mjög mikið um að vera.

Dýrasti leikur allra tíma, Grand Theft Auto 5, kemur formlega út á morgun, þriðjudag, en forsala á honum hefst á nú í kvöld í Gamestöðinni í Kringlunni. Leikurinn er nú þegar búinn að setja Íslandsmet í forsölu en yfir 1000 forpantanir hafa nú þegar verið gerðar.

 GTA 5 er dýrasti leikur allra tíma og slær að auki út kostnað allra Hollywood-kvikmynda sögunnar, fyrir utan eina; Pirates of The Carribean 3: At World´s End. Leikurinn kostaði um 265 milljón dollara eða 32 milljarða íslenskra króna. 

Kvöldopnunin hefst kl. 20:00 og 2 tímum síðar verður byrjað að afhenda leikinn.   Þá verða nokkrir af flottustu sportbílum landsins á svæðinu auk þess mæta BlazRoca og Emmsjé Gauti á svæðið sem og óvæntar uppákomur verða.

Þetta er kvöld sem þú vilt ekki missa af!

SHARE