Glutenfrí pítsa með góðu áleggi! – Uppskrift

Þessi pítsa er ótrúlega bragðgóð og frábær á laugardagskvöldi!

Fyrir  6

Efni:

Glútenfrír pizzabotn

  • 250gr. glútenfrítt mjöl
  • 1-1/2 bolli volgt vatn
  • 2 msk. olivuolia
  • 2 egg
  • 1 bréf þurrger

Álegg

  • 1 bolli rifinn ostur
  • 4 stor blöð af Iceberg eða kínakáli, skorið í fínar ræmur
  • 2 stórir tómatar skornir í litla bita
  • 1/2 litill, rauðlaukur skorinn í bita.
  • 1/4 bolli  ranch saladsósa
  • Ferskt krydd, t.d. parsley eða oregano

Aðferð:

  1. Hitið ofninn I 220◦C. Látið mjölið, ger, egg, olíu  og vatnið í stóra skál. Hnoðið deigið og látið það svo bíða og hefast. Fletjið deigið út og bakið þar til það er ljósbrúnt.
  2. Takid botninn úr ofninum og stráið rifna ostinum á hann, raðið grænmetinu á botninn og hellið svo saladsósunni yfir.
  3. Skreytið med fersku kryddi og  berið fram!

Njótið vel!

SHARE