Guðdómlegar sælgætishrískökur

Þessar girnilegu og guðdómlega gómsætu hrískökur koma af sælkerablogginu hennar Tinnu Bjargar. Mars, döðlur, lakkrís – talandi um að fara beinustu leið til himna! Ég mæli með því að þú fylgist með Tinnu á Facebook – hún er dásamlegur snillingur og sælkeri sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

Sjá einnig: Rice Krispies terta með bingókúlum & hraunrjóma

IMG_0048

Guðdómlegar sælgætishrískökur

6 stykki Mars

15 döðlur

300 gr Appolo lakkrískurl

3 msk sýróp

200 gr smjör

13 dl Rice Krispies

Sjá einnig: Rice Krispies kubbar með Oreo & hvítu súkkulaði

  • Skerið Mars og döðlur í litla bita og bræðið saman í potti ásamt lakkrískurli, sýrópi og smjöri. Hitið blönduna að suðu og látið krauma við vægan hita í um 5 mínútur.
  • Takið pottinn af hellunni og látið standa í 3-4 mínútur. Blandið því næst Rice Krispies saman við bráðina.
  • Notið matskeið til að fylla muffinsform af hrískökublöndu. Látið hrískökurnar kólna áður en þær eru bornar fram.

IMG_0050

 

SHARE