Heimsins besti hummus

Dásamlega ljúffengur hummus af blogginu hennar Tinnu Bjargar. Gott er að borða hann með góðu brauði eða pítubrauði sem skorið hefur verið í strimla. Sjálf moka ég þessari dýrð helst beint upp í munninn á mér með skeið. Ekkert vesen!

1

Heimsins besti hummus

1 dós niðursoðnar kjúklingabaunir

1 hvítlauksrif

2 msk grísk jógúrt

1 dl olía

safi úr 1/2 sítrónu

smá nautakraftur

salt

svartur pipar

steinselja eftir smekk

  • Hellið vökva af kjúklingabaunum og maukið í blandara eða matvinnsluvél ásamt hvítlauksrifi, grískri jógúrt, olíu og sítrónusafa. Smakkið til með nautakrafti, salti og pipar. Saxið steinselju og blandið saman við hummusið.
  • Hægt er að nota nautakraft í duftformi en ég leysi upp nautatening í smávegis af sjóðandi  heitu vatni.
  • Í staðinn fyrir gríska jógúrt er líka virkilega gott að nota AB mjólk.

Tengdar greinar:

Snarl sem inniheldur undir 200 hitaeiningar – Nokkrar hugmyndir

Cesarkjúklingur með spínati og hummus – Uppskrift frá Lólý.is

Er það sem okkur er sagt að sé hollt raunverulega hollt? – Nokkrar mýtur

SHARE