Hin eina sanna eplakaka

Þessi dásemd kemur frá Matarlyst á Facebook. Góð ylvolg með þeyttum rjóma eða bara hversdags með góðum kaffibolla eða mjólkurglasi. 

Eplakaka

Hráefni 

250 g flórsykur 
250 g smjörlíki við stofuhita 
3 egg
300 g hveiti 
1 tsk lyftiduft 
1 tsk vanilludropar 
Smá mjólk 1/2 til 1 dl 
1 græn epli (2 ef það er lítið) 
Kanelsykur ca 1/2 til 1 dl eftir smekk.

Aðferð 

Hitið ofninn í 180 gráður og blástur.

Smjörlíki og flórsykri er hrært saman þar til létt og ljóst, einu eggi í einu bætt út í hrært vel á milli. Vanilludropum ásamt þurrefnum bætt út í hrærið örskamma stund, bætið mjólk út í, hrærið á meðalhraða í ca 1 mín.

Smyrjið og dassið örlitlu hveiti inn í formin.
T.d Ég notaði eitt 22 cm form stærð sem er á mynd
Eða 2 stk 23 cm
Eða bara það form sem þið eigið.

Kjarnhreinsið epli og afhýðið, skerið í sneiðar, leggið yfir kökudeigið og sáldrið kanelsykri yfir.

Bakið við 180 gráður í u.þ.b 30- 40 mín eða þar til gullin, og þegar prjónn/gaffall kemur þurr upp þegar stungið er í kökuna

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here