Hún elskar Instagram: “Kasjúal” og fallega hrá götutíska #streetchic

Sumarið er komið og það er heitt og lifandi; göturnar iða af mannlífi og götutískan tröllríður Instagram. Þeir eru til sem segja að tískan verði til á götunum; að fólkið sem fötunum klæðist sé hinn raunverulegi innblástur hönnuða sem birta línur sínar á hátískupöllunum hvert ár. 

Hún elskar Instagram og fólkið sem skapar tískuna, landamæraleysi samskiptamiðla, iðandi mannlífið á götum stórborga og allar drottningarnar sem svífa eftir gangstéttunum, gyðjurnar sem móta tískuna með göngulaginu einu saman og taka yfir heilu göturnar með glæstu fatavalinu.

#streetchic er leitarorð dagsins og svarið er; svart, hvítt, fallega hráar blúndur og lausgreitt hár. 

 

‘ Hún er á Instagram; smelltu á:   Instagram

 

SHARE