Hvað er hægt að kenna hvolpi á fjórum dögum?

Þeir sem til þekkja segja að erfitt sé að kenna gömlum hundi að sitja, en hvað er hægt að kenna litlum 12 vikna hvolpi á heilum fjórum dögum?

Þessi litli snillingur er French Bulldog og heitir Brody Brixton. Hann er yngri bróðir tíkarinnar Misu nokkurrar Minnies og hér má sjá hvað hvolpurinn hefur lært á fjórum dögum með jákvæðri skilyrðingu. Brody fagnaði 12 vikna afmælinu sínu þann 29 desember 2014 og fylgir fast í loppuför eldri systur sinnar, sem er Yorkie.

Á fjórum dögum hefur Brody lært að sitja, bíða,  hlýða kalli, rétta fram loppuna og heilsa, snúa sér, skríða, hringja bjöllu og tekur stöðugum framförum á hverjum einasta degi. Sjálf er Misa meðferðarhundur og vonir standa til að Brody taki einnig við því hlutverki þegar hann eldist, en Brody á heimili í hinni sólríku Kaliforníu og elskar að leika sér meðan á þjálfun stendur:

Tengdar greinar:

Þetta er dýrasti hundur í heimi

Benni hundur elskar að rífa jólagjafapappírinn af gjöfunum

GoPro vél kemur upp um viðbrögð hunds

SHARE