
Inflúensa er veira sem gengur í faröldrum ár hvert. Hægt er að rekja u.þ.b. 290.000- 650.000 dauðsföll á ári og enn fleiri sjúkrahúsinnlagnir. Eitt þekktasta dæmið um inflúensufaraldur er Spænska veikin.
Smit
Inflúensa smitast við náin samskipti við smitaða einstaklinga. Veiran smitast með munnvatnsúða og snertismiti.
Einkenni
Einkenni eru oftast mun meiri en einkenni venjulegs kvefs. Helstu einkenni eru hár hiti, þurr og sár hósti, hálssærindi, sár höfuðverkur, miklir beinverkir og mikil þreyta. Flestir ná sér á u.þ.b. tveimur vikum en sumir fá berkjubólgu eða lungnabólgu.
Hverja á að bólusetja?
Flestir ættu að láta bólusetja sig en sérstaklega eldra fólk, einstaklingar með skert ónæmiskerfi eða langvinna sjúkdóma eins og t.d. astma eða hjartasjúkdóma. Einnig ættu starfsmenn sem vinna í nánum samskiptum við aðra, skólafólk og þeir sem telja sig ómissandi til vinnu, að láta bólusetja sig.
Hvenær á að bólusetja?
Algengasti tími inflúensufaraldra á Íslandi er frá október til mars. Því er algengast að bólusetningar fari fram í október, nóvember og desember.
Hverja á ekki að bólusetja?
Frábendingar við bólusetningu eru ofnæmi fyrir einhverjum af innihaldsefnum t.d. eggjum, neómýsíni eða formaldehýði.
Veldur bólusetning veikindum?
Bólusetning veldur sjaldnast veikindum. Allmargir fá þrota og roða á stungustað og u.þ.b. 5-10% fá væga beinverki eða höfuðverk.
Hvernig virkar bólusetning?
Dauðum inflúensuveirum er sprautað undir húð eða í vöðva. Við það virkjast ónæmiskerfið og myndar mótefni gegn viðkomandi veirum. Það tekur bóluefnið u.þ.b. tvær vikur að ná fullri virkni.
Hversu oft þarf að bólusetja?
Inflúensuveiran breytist milli ára og því þarf nýtt bóluefni og bólusetningu á hverju ári.
Góð ráð
Forðist náin samskipti við þá sem eru veikir eða með hósta.
Hóstið og hnerrið ekki út í loftið, notið frekar olnbogabótina.
Munið handþvott, sérstaklega eftir að þið hafið hóstað eða hnerrað í lófann.
Gangi ykkur vel!
Höfundur greinar
- Brynhildur Dóra Borgarsdóttir, hjúkrunarfræðingur
- Allar færslur höfundar
Greinin var birt á Doktor.is og er birt með góðfúslegu leyfi þeirra.
Sjá einnig:
- Er mygla á heimilinu? – Þetta eru einkennin

- Hann veipaði alla daga í þrjú ár og þetta var tekið úr lungum hans

- Dekur og notalegheit á aðventunni

- Hvað þarf að hafa í huga þegar þú ætlar að byrja að lyfta eftir 35 ára?

- Hvað er Inflúensa?

- 4 merki um að þú sért að borða of mikið af salti















