Instagram dagsins: David Gandy og voffinn hans

Instagram er sívaxandi samskiptamiðill sem flestir eru farnir að þekkja og nota hér á landi. Á Instagram setur fólk inn myndir af hinu og þessu og sjálfu sér auðvitað líka. Margar stjörnur nota Instagram mikið og því höfum ákveðið að byrja með lið hjá okkur sem mun bera það einfalda heiti „Instagram dagsins“ og munum við birta skemmtilegar og áhugaverðar myndir sem við rekumst á, á Instagram.

Hún.is er auðvitað á Instagram og þú getur „followað“ eða fylgst með okkur með því að smella á þennan hnapp  Instagram

Instagram dagsins kemur frá David Gandy sem er EKKI á Íslandi eins og við greindum frá í gær, svo að það er við hæfi að leyfa honum að njóta þess að vera Instagram dagsins hjá okkur í dag.  Held að ég þurfi varla að kynna hann fyrir ykkur.  En hér er hann í afslöppun og klæddur með litla hundinum sínum Lulu.

 

 

SHARE