Instagram dagsins: Lærin á Beyoncé

Instagram er sívaxandi samskiptamiðill sem flestir eru farnir að þekkja og nota hér á landi. Á Instagram setur fólk inn myndir af hinu og þessu og sjálfu sér auðvitað líka. Margar stjörnur nota Instagram mikið og því höfum ákveðið að byrja með lið hjá okkur sem mun bera það einfalda heiti „Instagram dagsins“ og munum við birta skemmtilegar og áhugaverðar myndir sem við rekumst á, á Instagram.

Hún.is er auðvitað á Instagram og þú getur „followað“ eða fylgst með okkur með því að smella á þennan hnapp  Instagram

 

Instagram dagsin að þessu sinni er í boði Beyoncé.  Það er allt að verða vitlaust í öllum helstu fjölmiðlum þar vestra vegna læra Beyoncé.  Því er haldið fram að hún hafi „lagfært“ myndina áður en hún setti hana á Instagram!  Get ekki séð annað en þetta sé bara samspil birtu og hvernig hún stendur á þessari mynd.

 

 

SHARE