Læsti dóttur sína í búri fyrir að nota Snapchat filter

Faðir hefur verið handtekinn fyrir að hafa læst dóttur sína í búri fyrir það að nota Snapchat filter í gríð og erg og birt þannig myndir af sér á netinu, sem hundur.

Rolando Cruz (42) hefur viðurkennt að hafa læst 17 ára dóttur sína inni í búri og ber hann fyrir sér að það hafi verið greinilegt að dóttir hans vildi vera hundur og því fannst honum eðlilegt að hún ætti að vera í búri og lifa eins og hundur.

Sjá einnig: Verðandi faðir í fimmta sinn fellur í yfirlið

Það var amma stúlkunnar sem komst að þessu vegna þess að hún var vön að fá símhringingu frá sonardóttur sinni reglulega, en þar sem hún hafði ekkert heyrt í henni, fór hún og kannaði málið og uppgötvaði því sér til skelfingar að stúlkan var læst inni í hundabúri í herbergi sínu.

Stúlkan segir að hún hafi verið að koma heim úr verslunarmiðstöðinni og fundið mömmu sína grátandi á sófanum og pabbi hennar var inni í herberginu hennar. Mamma hennar sagði að hún ætlaði að biðja fyrir henni og það næsta sem hún vissi að hún var inni í búri eins og hundur. Hún trúir ekki að foreldrar hennar höfðu gert henni þetta vegna einhverra Snapchat mynda.

Sjá einnig: Hann er óábyrgasti faðir í heimi – 15 börn með 10 konum

 

Snapchat-Dog-Filter

SHARE