Maður án ökuréttinda tekinn með tvö börn í bílnum

Ökumaður var stöðvaður í hverfi 105 vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Ökumaðurinn reyndist þegar að var gáð einnig hafa verið sviptur ökuréttindum. Ökumaðurnn var með tvö börn í bifreiðinni og var handtekinn og fluttur á lögreglustöð í hefðbundið ferli.

Fulltrúi frá barnavernd boðaður á lögreglustöð og fjölskyldumeðlimur kom í kjölfarið og sótti börnin. Ökumaður var látinn laus að blóðsýnatöku lokinni.

SHARE