Marengs kaffikaka – uppskrift

Þessi kaka hefur verið mín uppáhalds síðan ég man eftir mér. Ég drekk ekki kaffi en elska allt með kaffi í, þar á meðal kremið í þessari æðislegu köku. Ég hef alltaf boðið upp á þessa köku í veislum, síðan ég byrjaði að halda veislur sjálf á okkar heimili og alltaf vekur hún jafn mikla lukku.

Kaffikaka

7 eggjahvítur

250 gr. sykur

½ tsk. lyftiduft

 

Krem:

100gr. lint smjör

5msk. sykur

7eggjarauður

1½ tsk. Neskaffi

1 plata suðusúkkulaði

 

½ lítri rjómi

 

Aðferð:   Bökunarpappír settur á tvær plötur og hvítunum jafnað á þær. Setið inn í ofn sem búið er að hita vel (ca.200 gr. C) Þegar platan er sett í ofninn er hitinn lækkaður niður í 115 gr. C og botninn er látinn bakast í ca. 60 mín. Þá er hin platan sett inn og seinni botninn bakaður.

Þeytið saman smjör og sykur. Bætið eggjarauðum út í, einni  í einu. Þeytið vel og lengi! Bætið duftkaffinu út í og látið leysast upp. Brytjið suðusúkkulaðið og bætið því að lokum út í hræruna.

Nú eru botnarnir settir saman þannig að kremið fer á neðri botninn, þeytið rjómann, smyrjið honum ofan á kremið og efri botninn er settur ofan á.

Þá er komin hin girnilegasta kaka.

Verði ykkur að góðu!

 

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here