Meinhollar mangórúllur

Þessi stórsniðuga uppskrift er fengin af blogginu hennar Tinnu Bjargar. Ég mæli eindregið með því að þú fylgist með Tinnu á Facebook og fáir allar uppskriftirnar hennar beint í fréttaveituna. 

Sjá einnig: Mexíkóskur mangókjúklingur

Þurrkaðir ávextir kosta sitt og því er um að gera að útbúa slíkt sælgæti bara sjálfur.

IMG_7978b

Meinhollar mangórúllur

2 mangó

olía

  • Afhýðið mangó, skerið í bita og maukið vel í blandara.
  • Sníðið til tvær bökunarpappírsarkir þannig að þær passi í botninn á sitthvorri ofnplötunni.
  • Smyrjið pappírinn með örþunnu lagi af olíu. Ég nota eldhúspappír til að dreifa úr olíunni.
  • Deilið mangópúrrunni jafn á ofnplöturnar og smyrjið með sleikju þannig að þunnt lag þekji svo til allan bökunarpappírinn.

IMG_6183

Þurrkið mangóplöturnar í ofni við 80° í 4-5 klukkustundir eða þar til þær hafa þornað inn að miðju.

Klippið mangóplöturnar í ræmur og rúllið upp.

Einfaldara gæti það ekki verið.

SHARE