Neitaði að hitta Kardashian-fjölskylduna

Margir bíða eftir þáttunum American Crime Story: The People vs. OJ Simpson með mikilli eftirvæntingu. Leikarinn góðkunni, David Schwimmer, fer með hlutverk lögfræðingsins Roberts Kardashian í þáttunum en Robert var vinur og verjandi O.J. Simpson. Þegar David var að undirbúa sig fyrir hlutverkið talaði hann tímunum saman við Kris Jenner, fyrrverandi eiginkonu Roberts, í síma. Honum var svo boðið að hitta aðra fjölskyldumeðlimi, þar á meðal dætur Roberts – þær Kourtney, Kim og Khloe en hann hafnaði því tilboði.

Sjá einnig: Rob Kardashian fluttur á spítala

Framleiðendur þáttanna Keeping Up With the Kardashians spurðu hvort ég vildi ekki heimsækja Kardashian-systurnar. Þeir ætluðu sér að taka upp heimsóknina og ég einfaldlega kærði mig ekki um það, þannig að ég afþakkaði boðið.

was2003100215383

Robert Kardashian og O.J. Simpson.

SHARE