Nokkrar góðar samlokuuppskriftir – Glutenfrítt brauð

 Gluten-frítt brauð er yfirleitt ekki mjúkt eins og hveitibrauðið. Þú getur bætt glútenfrítt brauðið þitt með því að bæta ýmsu í það. Prófaðu eftirfarandi hugmyndir.

 

Hér er ein hugmynd frá Californiu 

 

Efni:

  • 2 sneiðar gluten frítt brauð
  • 2 þeytt egg
  • 1/4 bolli mjólk eða hrísgrjónamjólk
  • smá olía (á pönnuna)
  • 1 sneið kalkúnakjöt (eða kjúklingur)
  • 2 sneiðar skinka
  • 2 ostasneiðar
  • majónes

Aðferð:

  1. Hitið pönnu (í 180˚C.
  2. Þeytið eggin og mjólkina saman á diski.
  3. Smyrjið majónesi á aðra brauðsneiðina.
  4. Leggið ostinn, svínakötið og kalkúnann  á brauðsneiðina  með majónesinu.
  5. Berið olíu á pönnuna.
  6. Leggið samlokuna í eggjablönduna.
  7. Bakið samlokuna í 5 mín. á hvorri hlið.
  8. Takið samlokun af pönnunni.

Hugmynd: Setjið tómatasneiðar og avocado á samlokuna. 

Gluten-frí langloka með hvítlauk og osti 

Efni:

  • 1 gluten-frí langloka
  • 2 tsk. kraminn hvítlaukur
  • 4 tsk. smjör
  • 3/4 bolli rifinn parmesían ostur
  • 1 tsk. ítölsk saladsósa
  •  salt
  • Pipar

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180˚C.
  2. Skerið langlokuna eftir endilöngu.
  3. Smyrjið báða helminga með smjöri og hvítlauk.
  4. Stráið parmesían osti, salti og pipar á brauðið.
  5. Bakið í 20 mín.

 

Gluten-frír berja morgunverður

 

Efni:

  • 2 sneiðar gluten-frítt brauð
  • 2 þeytt egg
  • 1 tsk. púðursykur
  • 1/2 bolli bláber
  • 1/2 bolli jarðarber
  • bláberjasýróp ( ef það er til, annars hlynsýróp)
  • þeyttur rjómi (ef vill)

Aðferð:

  1. Hitið pönnu í 180˚C.
  2. Leggið brauðið í þeyttu eggin og látið það gegnblotna
  3. Setjið brauðið á pönnuna og steikið
  4. Takið brauðið af pönnunni.
  5. Stráið púðirsykrinum á brauðið meðan það er heitt
  6. Raðið berjunum á brauðið, hellið ögn af sýópi yfir og þeyttum rjóma  ef vill.

 

SHARE