Nuddolía fyrir ungabörn



Sagt er að lengi búi að fyrstu gerð, á það vel við um ungbarnanudd. Rannsóknir sem gerðar hafa verið á ungbarnanuddi sýna að börn sem eru nudduð reglulega þyngjast og þroskast mun fyrr en þau sem ekki eru nudduð auk þess sem nuddið styrkir tengsl á milli foreldra og barnsins. Ýmiss námskeið eru í boði fyrir foreldra en hér er góð uppskrift af mildri olíublöndu sem hentar ungabörnum vel.

•    80 ml sweet almond olía
•    20 ml olífuolía
•    5 dropar chamomile ilmkjarnaolía
•    8 dropar lavender ilmkjarnaolía

Öllu blandað saman og sett á flösku.

SHARE