Mögnuð frammistaða: Sjö ára gömul díva með draumkennda rödd vekur heimsathygli með Fly Me To The Moon

Hinni sjö ára gömlu Angelinu Jordan er söngurinn í blóð borinn og hún sýnir magnaða yfirvegun í myndbandinu sem sjá má hér að neðan, en hún tróð upp í norskum skemmtiþætti fyrir skömmu síðan og tók gamla Frank Sinatra slagarann Fly Me To The Moon af slíkri fagmennsku að litla stúlkan hefur unnið hug og hjörtu heimsbyggðarinnar.

Engan skyldi undra að Angelina, sem býr yfir afar fágætum hæfileika á sviði sönglistar, skuli hafa sína eigin vefsíðu, þar sem meðal annars má lesa umfjallanir um þessa kornungu söngdívu og undraverðan árangur hennar á stuttri ævi. Þá keppir Angelina til úrslita í hæfileikaþættinum Norway´s Got Talent og ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, en hún keppir til sigurs með laginu Bang Bang sem Nancy Sinatra, dóttir tónlistargoðsins Frank Sinatra gerði svo eftirminnilega frægt á sínum tíma.

 

Raddsvið litlu stúlkunnar er algerlega magnað – hún er aðeins sjö ára gömul! 

[youtube width=”600″ height=”320″ video_id=”rFWs2Z_RZ3Y”]

SHARE